Talsmaður Samtaka lánþega segir að úrræði bankanna í húsnæðislánum séu fölsk loforð og að þau geti stuðlað að hækkun lána í stað þess að lækka þau.
Skuldastaða heimila og fyrirtækja var á meðal þess sem rætt var um í Vikulokunum á Rás 1 í morgun. Gestir þáttarins voru Lára Hanna Einarsdóttir, bloggari og þýðandi, Andrés Jónsson, almannatengill og Guðmundur Andri Skúlason talsmaður Samtaka lánþega.
Guðmundur Andri tók í þættinum dæmi um gengistryggt lán upp á 20 milljónir sem nú sé komið upp í 50 milljónir fyrir íbúð sem sé um 27 milljóna króna virði. Bankarnir bjóði upp á lækkun höfuðstóls um fjórðung. Guðmundur segir að þó lánið sé lækkað með þessu niður í 37 milljónir króna, gleymist að líta á heildarmyndina. Láninu sé breytt í íslenska vexti með verðtryggingu og öllu tilheyrandi. Þegar öllu sé á botninn hvolft hafi lánið, sem hefði í heildina kostað lánþegann 75 milljónir, hækkað í 189 milljónir, taki hann fjórðungsniðurfellingu. Lánið hækki því um 120 milljónir króna miðað við 4% verðbólgu.
Guðmundur Andri segir að fólk sé platað með þessum úrræðum með fölskum loforðum um að það eigi kannski einhvern rétt á þrotabúi verði þetta dæmt ólöglegt. Bankinn hafi hinsvegar fengið þetta sama 50 milljóna króna lán á 25 milljónir.
