Sunnudagur - 14.3 2010 - 15:39 - Ummæli ()

Erlendur sérfræðingur í skuldum ríkja: Ísland þarf engin erlend lán, þau eru „koss dauðans“

alexjurshevsky.jpgÍslenska ríkið á ekki að taka frekari erlend lán, það verður aðeins til þess að framlengja kreppuna hér á landi og fæla erlenda fjárfesta frá því að fjárfesta á Íslandi.

Þetta sagði  Alex Jurshevski, sérfræðingur í skuldaheimtum sem starfar fyrir fyrirtækið Recovery Partners, í Silfri Egils í dag. Hann var nokkuð stóryrtur í málflutningi sínum, sagði erlenda lántöku brjálæði og „koss dauðans.“

Hann segist hafa unnið með nýsjálenskum stjórnvöldum að því að ná niður skuldum ríkisins. Þar hafi stjórnmálamenn úr öllum flokkum verið meðvitaðir um mikilvægi þess að borga niður skuldir og ná tökum á vandanum ætti að vera forgangsmál. Stjórnmálamenn hér á landi virðist ekki hafa náð þessu og telji að leiðin út úr vandanum sé að taka fleiri erlend lán.

Jurshevski segir að svo virðist sem hluti lánanna sem eigi að fá frá Norðurlöndunum og Alþjóðagjaldeyrissjóðinum verði notuð til að greiða út jöklabréfasjóði. Hann segir þetta brjálæði.  Á krísutímum veiti dómstólar venjulega fyrirtækjum á leið í gjaldþrot heimild fyrir greiðslufrest. Það þýðir að fjárfestar og kröfuhafar hafi ekki rétt á því að selja eða komast frá fyrirtækinu á undan öðrum. Þetta ástand geti varað í nokkur ár og viðurkennt fyrirkomulag í öllum vestrænum ríkjum.  Þá sé hægt að byggja upp fyrirtækið aftur og laða að nýja fjárfesta. Hann sagði enga ástæðu til að fara á taugum yfir því að jöklabréfaeigendur væru fastir með sitt fjármagn í nokkur ár, það væri viðtekin venja fjárfesta og áhætta sem þeir taki, þeir verði einfaldlega að bíða þolinmóðir í nokkur ár. Þá sagði hann að leiðin úr jöklabréfavandanum væri að semja við eigendur bréfanna, en ekki freista þess að leysa málið með erlendri lántöku.

Jureshevski segir að þörf sé á því að setja upp hér skuldastjórnun, sem aldrei hafi verið til staðar í stjórnkerfinu hér á landi. Hann væri reiðubúinn að leggja ríkinu lið, auk þess  sem hann hefði áhuga á að fjárfesta á Íslandi, ef aðstæður verði fýsilegar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar