Sunnudagur - 14.3 2010 - 11:42 - Ummæli ()

Þingmaður: Þorsteini Pálssyni var lofað útvarpsstjórastól. Ekki rétt, segir Þorgerður Katrín

thorgerdur-katrin.jpgÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa verið búin að lofa Þorsteini Pálssyni stöðu útvarpsstjóra þegar hún var menntamálaráðherra árið 2005.

Í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni var fullyrt að Þorgerður Katrín hafi verið búin að ákveða að Þorsteinn Pálsson fengi stöðu útvarpsstjóra eftir að Markús Örn Antonsson lét af störfum. Á þeim tíma var Davíð Oddsson orðinn utanríkisráðherra og hann skipaði Markús Örn sendiherra í Kanada.

Í þættinum var haft eftir ónefndum þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að Þorgerður Katrín hafi lofað Þorsteini útvarpsstjórastólnum, en Davíð Oddsson hafi komið í veg fyrir það. Enn hafi ríkt erjur á milli Davíðs og Þorsteins og Davíð hafi einfaldlega sagt Þorgerði að ekki kæmi til greina að Þorsteinn yrði útvarpsstjóri.

„Nei, þetta er ekki rétt,“ sagði Þorgerður Katrín aðspurð um þetta atriði. „Það má vel vera að ýmsir hafi verið slegnir leiftursnöggt í höfuðið á þessum tíma, en það á ekki við í þessu tilviki,“ sagði hún og vísaði þar til þess Davíð hafi sem formaður Sjálfstæðisflokksins oft tekið ráðin af sínum flokksmönnum, slegið þá leiftursnöggt í höfuðið, einsog það var stundum kallað.

Í þættinum gagnrýndi Þorgerður Katrín jafnframt núverandi ríkisstjórn og þá sérstaklega Steingrím J. Sigfússon. Taldi hún ekki við hæfi af honum að gagnrýna atvinnurekendur, líkt og hann hafi gert í vikunni. „Mér sýnist að hann þjáist af einhverjum Messíasarkomplexi,“ sagði Þorgerður Katrín.


Facebook síða Twitter síða RSS straumar