Fyrstu rússnesku orrustuþoturnar sem komið hafa óboðnar í heimsókn að landinu á þessu ári komu hingað á miðvikudaginn var þegar tvær Tupolev þotur sáust á ratsjám og stefndu hringinn kringum landið. Breyttu þær strax um stefnu þegar danskar orrustuþotur sem hér sinna loftrýmiseftirliti voru sendar á loft.
Skýrir RÚV frá þessu en heimsóknin á miðvikudag er sú fyrsta á árinu svo vitað sé. Engu að síður hafa rússneskar orrustuþotur gert sig heimakomnar alls 62 sinnum í nánd við landið frá því að bandaríski herinn pakkaði saman föggum sínum í Keflavík árið 2006.
Sem fyrr létu flugmenn Tupolev vélanna ekki vita af sér eins og alþjóðalög gera ráð fyrir en vélarnar voru 155 sjómílur frá landi þegar flugmenn þeirra breyttu stefnu sinni. Síðustu rússnesku vélarnar sem vart var við flugu að landinu í nóvember síðastliðnum.
