Bankarnir vilja blása lífi í bónuskerfi starfsmanna. Skilanefndir bjóða þrefalt hærri laun
„Það er mikilvægt að halda launahvatakerfi innan skynsamlegra marka og að þeir einir fái kaupauka sem eiga hann skilið,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra við blaðið. Reglur um árangurstengdar greiðslur eru hluti af viðamiklum breytingum ríkisstjórnarinnar á lögum um fjármálafyrirtæki, sem liggja á borði viðskiptanefndar Alþingis. Í þeim segir meðal annars að jafnvægis eigi að gæta á milli launa- og bónusgreiðslna.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru laun hjá bönkunum þremur þau hæstu innan fjármálageirans, ef frá eru skildar skilanefndir bankanna. Meðallaun hjá skilanefndum Kaupþings og Landsbankans hér á landi voru um 450 þúsund krónur á mánuði í fyrra en 1,1 milljón hjá skilanefnd Glitnis.
Flestir starfsmenn skilanefnda eru með hagfræði- eða viðskiptafræðimenntun. Miðgildi mánaðarlauna viðskipta- og hagfræðinga nam 581 þúsund krónum í fyrra, samkvæmt kjarakönnun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, sem gerð var í fyrrahaust. Þetta var átta prósenta hækkun milli ára.
Þá eru heimildir fyrir því að skilanefndir hafi freistað starfsmanna nýju bankanna með allt að þrisvar sinnum hærri launum.
Bankarnir hafa verið tregir til að upplýsa um launakjör. Arion banki og Íslandsbanki vísa í að upplýsingarnar muni koma fram í væntanlegum ársreikningi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum eru meðallaunin um 480 þúsund krónur. Ásmundur Stefánsson bankastjóri er með 1,5 milljón króna í laun á mánuði. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru framkvæmdastjórar bankans með um eina milljón króna á mánuði.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Skilanefndir bankanna bjóða bankastarfsmönnum þreföld laun fyrir vistaskipti. Þreifingar eru um að taka aftur upp bónuskerfi í Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka, samkvæmt heimildum 