Mánudagur - 15.3 2010 - 15:46 - Ummæli ()

David Beckham (34): Stórslasaður og spilar hugsanlega ekki með á heimsmeistaramóti

David Beckham segist vonast til þess að jafna sig hratt og örugglega eftir áverka sem hann varð fyrir á leik í gær milli AC Milan og Chievo Verona.

becksout2.jpg

Meiðslin (Akkilesar hæll) munu að öllum líkindum valda því að hann spilar ekki með á heimsmeistaramótinu. Beckham hefur nú haldið til Finnlands þar sem hann hittir sérfræðing.

Hinn 34 ára gamli leikmaður slasaðist á sunnudag á lokamínútum leiks milli AC Milan og Chievo Verona (1-0). Í gær sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann þakkaði aðdáendum stuðninginn en honum hafa borist óteljandi bata óskir frá því að hann meiddi sig.

Smellið hér til að skoða myndir af Beckham slasast:

 <  1 af 5 > 
David Beckham.

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar