Mánudagur - 15.3 2010 - 08:11 - Ummæli ()

Margeir gæti misst eignarhlut sinn í MP Banka. Byr íhugað að leysa til sín hluta af hlutabréfum hans

margeir-peturssonmp.jpgMargeir Pétursson, aðaleigandi og stjórnarformaður MP Banka, gæti misst eignarhlut sinn í bankanum vegna útistandandi skulda eignarhaldsfélaga í hans eigu við sparisjóðinn Byr. Veðin fyrir lánunum er að hluta í hlutabréfum félaganna í MP Banka.

Þetta er fullyrt í DV í dag.

Blaðið segir að til tals hafi komið í stjórn Byrs að leysa til sín hluta af hlutabréfum Margeirs í MP Banka vegna þess að hann hefur meðal annars átt í erfiðleikum með að standa í skilum með vaxtagreiðslur af lánum sínum. Auk þess hafi verið deilt um verðmæti hlutabréfanna í MP Banka og hversu hátt eigi að verðmeta þau upp í skuldina við sparisjóðinn. DV segir að stjórnin hafi  átt í viðræðum við Margeir út af skuldum félaganna. Þó muni ekki standa til að leysa bréfin til sín á næstunni en það muni vera einn af þeim möguleikum sem rætt hefur verið um í stjórninni.

Fram kemur í DV að Margeir á nærri 30% hlut í MP Banka í gegnum eignarhaldsfélögin Margeir Pétursson ehf. og Hraunbjarg ehf. Stærsti hlutur hans er inni í Margeir Pétursson ehf., tæp 22%, og kemur fram í ársreikningi félagsins árið 2008 að rúmur helmingur bréfa Margeirs sé veðsettur hjá lánastofnunum út af skuldum félagsins.

Heimildir DV herma að heildarskuldir Margeirs og félaga hans við Byr nemi á milli 2 og 2,5 milljörðum króna. Í ársreikningi Margeirs Péturssonar ehf. kemur fram að skuldir félagsins við lánastofnanir nemi um 1.200 milljónum króna og að þær hafi verið á gjalddaga árið 2009. Stærstur hluti þessara skulda, tæpur milljarður króna, var í íslenskum krónum með 19 til 22 prósenta vöxtum og kemur fram í ársreikningnum að þessar skuldir hafi verið á gjalddaga í fyrra, árið 2009.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar