Mánudagur - 15.3 2010 - 18:46 - Ummæli ()

Dapurlegt við Húnaflóa. Fjórða hvert heimili á leið í þrot eftir stofnfjárkaup í sparisjóði

2186257000_dcbf3b090e.jpgSkuldastaða fjölmargra heimila í Húnaflóa er það hræðileg að fátt annað en gjaldþrot blasir við eigendum eftir að margir íbúar tóku milljóna króna lán til að kaupa stofnfjárbréf í Sparisjóði Húnaþings og Stranda þegar sá sjóður sameinaðist Sparisjóði Keflavíkur seint á árinu 2007.

Má heita að fjórða hvert heimili sé nánast undir hamrinum eins og sakir standa og segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, við Stöð 2 vegna málsins að reyndin við Húnaflóa sé eitt dapurlegasta dæmið sem finnist á Íslandi í dag. Segir hann alls ekki útiloka einhverjar aðgerðir en þær geti ekki verið sértækar og verði að vera í takt við almennar aðgerðir til bjargar skuldsettum heimilum.

Hvorki bankastjórar Landsbankans né Sparisjóðs Keflavíkur, sem eru stærstu kröfuhafar, eygja lausn fyrir íbúana að svo stöddu en áfram sé unnið að því að lenda málinu með eins mjúkum hætti og mögulegt sé. Jafnvel sé verið að skoða aðkomu Byggðastofnunar að málinu en ráðamenn á svæðinu kalla mjög eftir sértækum aðgerðum með tilliti til stærðar vandans og smæðar byggðarinnar á þessum stað.

Flestir þeir er þátt tóku í kaupum á stofnfjárbréfunum tóku lán fyrir þeim en áætlað er að heildarskuldir þeirra nemi nú þremur milljörðum króna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar