Mánudagur - 15.3 2010 - 08:15 - Ummæli ()

Gylfi Magnússon: Botnlaust rugl í Jurshevski

gylfi-magnusson1.jpgHugmyndir Alex Jurshevskis, um að Ísland taki engin frekari erlend lán, eru botnlaust rugl, að mati Gylfa Magnússonar,  efnahags- og viðskiptaráðherra.

Einsog Eyjan greindi frá í gær, var Alex Jurshevski gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í gær. Hann sagði að tækju Íslendingar fleiri lán yrðu vaxtagreiðslur af þeim þjóðinni ofviða.

Hann sagði að hér á landi ríkti alger upplausn og gagnrýndi að ekki væri faglega staðið að því að leysa vanda þjóðarinnar vegna skulda við önnur ríki. Það hafi verið dýrkeypt mistök að fallast á að greiða Icesave-skuldina. Þá mælir hann gegn því að þjóðin þiggi fleiri lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þar sem þau fari einvörðungu í að borga út jöklabréf. Vaxtagreiðslur af þessum lánum verði þjóðinni ofviða og leiði til enn meiri niðurskurðar í opinbera geiranum.

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur ekki undir með Jurshevski. Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins sagði hann að skuldir Íslands væru í meðallagi miðað við vestræn ríki. Nauðsynlegt væri að hafa aðgang að erlendu lánsfé þar sem skuldir hafi ekki verið greiddar. Lán Alþjóðgjaldeyrissjóðsins og lánin vegna Icesave væru þau hagstæðustu sem bjóðast. Gylfi telur glórulaust rugl að halda því fram að við eigum ekki að tak þessi lán hvað þá að við höfum ekki efni á að borga okkar skuldir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar