Íslendingar glíma við hvað minnst fæðuóþol eða fæðuofnæmi í Evrópu samkvæmt nýrri könnun meðal 4500 manns í 13 vestrænum löndum. Samkvæmt henni þjást aðeins átta prósent landsmanna að meðaltali af einhvers konar óþoli á mat en nágrannar okkar í Noregi eru hins vegar með hvað mest óþol gagnvart ákveðnum fæðutegundum eða um 22 prósent þeirra.
Koma niðurstöðurnar úr rannsókn Imperial háskólans í London en greint var frá þeim fyrir skömmu í fagtímaritinu Allergy. Er sá skóli einna fremst í flokki í heiminum hvað rannsóknir á ofnæmi og óþoli varðar. Fór rannsóknin fram þannig að blóðprufur voru rannsakaðar með tilliti til mótefna sem í blóði fannst gegn ákveðnum mat eða fæðu og kom í ljós athygliverður munur milli þjóða.
Eru Norðmenn í hópi með Bandaríkjamönnum, Ítölum og Þjóðverjum með mesta fæðuóþolið í um 22 prósentum en Íslendingar með minnst kringum átta prósent.
Merkilegustu niðurstöður rannsóknarinnar eru vafalaust sú staðreynd að sú fæða sem hvað flestir tengja við fæðuóþol eins og mjólk og mjólkurvörur, egg og fiskmeti reyndist tiltölulega harmlaus þegar niðurstöðurnar lágu fyrir. Algengasta óþol fólks mældist gegn fæðu á borð við heslihnetum, rækju, hveiti, ferskjum og epplum.
