Mánudagur - 15.3 2010 - 21:18 - Ummæli ()

Hjálparsími Rauða krossins: Símtölum vegna sambandsslita og örðugleika fjölgar mikið

20090130_oradio_pwalsh_1_350×263.jpgÞeim einstaklingum sem leita á náðir hjálparsíma Rauða krossins, 1717, vegna samskiptaörðugleika eða beinna sambandsslita hefur fjölgað mjög á því eina og hálfa ári sem liðið er frá bankahruninu. Fer ekki á milli mála að fjárhagsvandræði hafa ekki síst áhrif á sálarlíf og tilfinningar manna millum.

Hefur Rauði krossinn því sett af stað sérstaka átaksviku vegna þessa en starfsfólki telst til að símtölum í 1717 vegna sambandsörðugleika af einhverju tagi hafi fjölgað um 40 prósent. Eru ástæður þessa jafnan aukið álag á einstaklinga vegna ýmislegs fjárhagslegs eðlis. Getur þar verið um að ræða atvinnumissi, slæma almenna fjárhagsstöðu og vanlíðan og kvíða af sama tilefni.

Er verkefnið brýnt enda er slík vanlíðan og kvíði hjá fólki oft fyrsta skrefið að öllu alvarlegri stöðu þar sem biturð, hræðsla og jafnvel ofbeldi og líkamlegir kvillar gera vart við sig. Hvetur Rauði krossinn fólk til að hafa samband og taka þannig fyrsta skrefið til aðstoðar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar