Mánudagur - 15.3 2010 - 07:13 - Ummæli ()

Mestar afskriftir á dýrum bílum á háum lánum. Aðrir fá litlar eða engar afskriftir

bilar2.jpgMestar afskriftir bílalána verða á dýrum bílum sem keyptir voru á háum lánum, gangi hugmyndir félagsmálaráðherra eftir um að afskrifa lán umfram 110% af markaðsvirði bílanna. Þetta segja talsmenn þeirra sem lánuðu fyrir kaupunum, í Morgunblaðinu í dag.

Þeir forsvarsmenn eignaleigufyrirtækjanna sem rætt var við í gær segja að stórir og dýrir bílar hafi lækkað mest í verði, hvort heldur litið sé til prósentu- eða krónutölu.

Því muni þeir sem tóku hlutfallslega há lán til kaupa á slíkum bílum hagnast mest á slíku úrræði en það séu ekki endilega þeir sem eigi í mestu greiðsluerfiðleikunum.

Þeir sem á hinn bóginn hafi t.d. lagt fram eldri bíl eða sparifé upp í kaup á nýjum muni hins vegar margir sitja uppi með sömu skuld og áður.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar