Hagkaup má héðan í frá ekki auglýsa mesta vöruúrval landsins eða landsins mesta úrval eins og fyrirtækið hefur gert undanfarin ár. Ástæðan sú að Hagkaup hefur ekki fært sönnur á að svo sé og því ber fyrirtækinu að hætta slíkum auglýsingum strax samkvæmt ákvörðun Neytendastofu sem áfrýjunarnefnd sama embættis hefur nú staðfest.
Auglýsingaherferðir fyrirtækisins síðastliðin ár hafa að mestu farið fram undir slagorðunum „Landsins mesta úrval“ eða „Mesta vöruúrval landsins“ en að baki þeirri fullyrðingu er ekkert annað en niðurstaða skoðanakannana sem Capacent hefur framkvæmt árlega að beiðni fyrirtækisins sjálfs. Þykir það mat þeirra einstaklinga sem þátt hafa tekið í slíku ekki staðfesta að Hagkaup sé í raun með landsins mesta vöruúrval og því ber fyrirtækinu að hætta slíkum auglýsingum sem fyrst.
Segir í reglum að fyrirtæki megi ekki auglýsa annað en fært verði sönnur á með einum eða öðrum hætti og það hafi Hagkaup ekki gert þó svo viðmælendur í könnunum telji fyrirtækið með mesta vöruúrval landsins.
Niðurstaða áfrýjunarnefndar hér.
