Mánudagur - 15.3 2010 - 12:34 - Ummæli ()

Skiptastjóri Milestone: Hyggst höfða eigi færri en 20 dómsmál vegna gjörninga eigenda

wernerssynir.jpgSkiptastjóri þrotabús Milestone höfða 20 dómsmál hið minnsta og jafnvel 10 til 15 slík í viðbót vegna gjörninga eigenda og stjórnarmanna Milestone síðastliðin tvö ár en aðgerðir skiptastjóra voru kynntar kröfuhöfum á fundi í morgun. Dómsmálin tengjast riftun á grundvelli gjaldþrota, endurgreiðslu lána og ekki síst ábyrgð eigenda og stjórnarmanna.

Frá þessu greinir á RÚV en fundi skiptastjóra lauk laust fyrir hádegið.

Segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri að skoðað hafi verið í kjölinn málefni fyrirtækisins síðustu tvö árin en Milestone var sem kunnugt er eignarhaldsfélag Wernerssona, þeirra Steingríms og Karls, og réði fyrirtækið yfir fjölmörgum fyrirtækjum á borð við Sjóvá, mörgum lyfjafyrirtækjum og mörgum öðrum erlendum félögum.

Segir Grímur ómögulegt að tjá sig um upphæðir í þessu sambandi enn sem komið er. Ekki hafi verið farið svo gaumgæfilega ofan í bókhaldið á þessu stigi en það sé næsta skref. Vildi hann ekki tjá sig frekar um þau mál er hugsanlega varða ábyrgð fyrrum eigenda þess en Wernersbræður hafa í fréttum undanfarna mánuði verið tengdir ýmsum gerningum sem þykja orka tvímælis.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar