Mánudagur - 15.3 2010 - 13:10 - Ummæli ()

Stjórnvaldsaðgerðir hafa ekki áhrif á ágreining um lagalega stöðu gengislána

copy_of_bilar.jpgÞær aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til varðandi skuldir fólks vegna yfirveðsettra bíla hafa engin áhrif á þann ágreining sem nú er fyrir dómstólum varðandi gengislán. Deilt er um réttmæti þeirra og hafa þrjú slík mál farið fyrir héraðsdóm með misvísandi niðurstöðum og er þess beðið að fyrsta slíka málið fari fyrir Hæstarétt en það ætti að verða í haust eða vetur.

Hafa nokkrir vakið athygli á að færsla bílalána niður í 110 prósent af verðmæti þeirra eins og félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason, hefur boðað gæti breytt stöðu skuldara þegar niðurstaða dómstóla varðandi gengislánin liggur fyrir en fullyrt er að slíkt hafi engin áhrif.

Hefur félagsmálaráðuneytið sent frá sér sérstaka tilkynningu vegna málsins þar sem hnykkt er á að þær aðgerðir sem nú hafa verið kynntar varðandi bílalán hafi engin áhrif á þær deilur sem fyrir dómstólum eru. Enginn þarf að óttast slíkt og munu þær á engan hátt taka betri rétt af lánþegum fari svo að Hæstiréttur komist að því að gengislánin séu í raun og veru ólögmæt.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar