Töluverð reiði er meðal starfsmanna Norðuráls á Grundartanga með gang kjaraviðræðna við yfirstjórn félagsins og aðkoma ríkissáttasemjari hefur litlu skilað. Þykir starfsmönnum erfitt að skilja hvers vegna fyrirtækið sem sýnir mikinn hagnað ár eftir ár getur ekki boðið þeim sambærileg kjör og starfsmenn annarra álvera fá en þar munar tugum þúsunda.
Segir í DV í dag að margir sér komnir með nóg og stöku starfsmenn séu ný beinlínis hlynntir verkfalli náist ekki verulega saman fljótlega en litlar líkur virðast vera á því. Vill formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, meina að kröfur starfsmanna séu sanngjarnar og í raun eðlilegar miðað við aðra starfsmenn í þessum geira hérlendis. Fullyrðir hann að tugum þúsunda muni á launum starfsmanna Norðuráls og til dæmis starfsmanna Alcan í Straumsvík.
Samkvæmt upplýsingum DV er Norðurál reiðubúið að bjóða 4,5 prósenta hækkun bónusgreiðslna næstu árin en beinar launahækkanir komi ekki til greina. Trúnaðarmenn fyrirtækisins kanna nú hvort starfsmenn hafi verkfallsrétt og liggi það ljóst fyrir sé ekki útilokað að til þess verði gripið fyrr en síðar.
