43ja ára Íslendingur, Vignir Arnarson, ætlar að ganga þvert yfir Noreg og Svíþjóð á 30 dögum og lifa aðeins á því sem náttúran gefur honum á leiðinni. Vegalengdin er 600 kílómetrar i loftlínu og segir Vignir að á meðal dýra sem lifa á þeim slóðum séu úlfar og birnir.
Á facebook-síðu um ferðina segist Vignir hafa undirbúið ferðina í tvö ár. Ferðafélagi hans verður hundurinn Caro, sem er írskur setter.
„Ég mun ekki taka med neinn mat eda drykk og ætla adeins ad lifa á því sem nátturan gefur af sér. Þetta verður ekki létt en með þessu vil ég reyna að sína framá hversu einfaldan dag við sem eigum að teljast heilbrigð í rauninni höfum,“ segir Vignir, sem stefnir að því að hefja ferðina í kringum 20. júli í sumar.
Með göngunniu hyggst Vignir safna áheitum til styrktar Ung blindum á Íslandi.
„Ástæðan fyrir þessu er að yngsta dóttir mín greindist með ólæknandi augnsjúkdóm og hefur hún og við notið einstakrar hjálpar frá Blindrafélaginu en Ung Blind er deild innan þess fyrir blind og sjónskert börn og unglinga. Það er von mín og trú að fólk sé tilbúið til að heita 500 til 1000 iskr á UNG BLIND ef ég næ markmiði mínu,“ segir Vignir.
