16 mars er fæðingardagur margra þekktra einstaklinga, meðal annars er söngvarinn Páll Óskar fæddur í dag og nasistinn illræmdi Josef Mengele og fatahönnuðurinn Alexander McQueen áttu einnig afmæli 16 mars.

Enn fremur á Jens Stoltenberg eftir að halda upp á afmælið sitt í dag og Peaches Geldorf, dóttir popparans og mannúðarfrömuðarins Bobs Geldorf á líklegast eftir að blása á einhver kerti.
Þá er gaman að geta þess að Páll Óskar er svo vinsæll nú á fertugasta afmælisári sínu, að hann getur ekki lengur tekið á móti bókunum á skemmtanir. Hann er bókaður út árið 2010.
Þetta segir popparinn knái sjálfur þegar hringt er í talhólfið hans: „Já, þú heyrðir rétt, ég er bókaður út árið 2010!“
16. mars er 75. dagur ársins og þá eru 290 dagar eftir af árinu.
1868 – Maxim Gorkíj, rússneskur rithöfundur (d. 1936).
1911 – Josef Mengele, þýskur læknir, vísindamaður og stríðsglæpamaður (d. 1979).
1926 – Jerry Lewis, bandarískur leikari.
1941 – Bernardo Bertolucci, kvikmyndaleikstjóri.
1953 – Richard Stallman, stofnandi Frjálsu hugbúnaðarstofnunarinnar.
1959 – Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs.
1969 – Alexander McQueen (d. 2010)
1970 – Páll Óskar Hjálmtýsson, íslenskur tónlistarmaður.
1989 – Peaches Geldorf
