Jón Ásgeir Jóhannesson og Bakkavararbræður, Ágúst og Lýður Guðmundssynir, eru í hópi þeirra sem látið hafa í ljós áhuga á því að kaupa DV af núverandi eiganda, Hreini Loftssyni. Þá hefur Reynir Traustason ritstjóri blaðsins safnað um sig hópi fjárfesta og vill einnig kaupa blaðið.
Þetta hefur Eyjan eftir traustum heimildum í kvöld.
Niðurstöðu í málinu er að vænta síðar í vikunni eða um næstu helgi. Það er Jón Scheving Thorsteinsson hjá Arev verðbréfum sem annast sölu blaðsins. Hann er fyrrverandi starfsmaður Baugs.
Talið er að fyrir Jóni Ásgeiri vaki að sameina rekstur DV öðrum miðlum 365 fjölmiðlasamsteypunnar sem hann á. Ekki eru nema fjögur ár síðan Hreinn Loftsson keypti DV út úr 365 miðlum. Sennilega yrði DV breytt í helgarblað ef af þessu verður.
Ekki er ljóst hvað Bakkavararbræður hugsa sér með DV. Þeir eru fyrrverandi eigendur Viðskiptablaðsins og Skjás eins. Helst er talið að þeir vilji leggja DV niður eins og Björgólfsfeðgar áformuðu þegar þeir gerðu kauptilboð í blaðið í desember 2005.
Reynir Traustason mun hafa safnað á annan tug milljóna króna til kaupanna á DV. Verðhugmynd sem sett hefur verið fram við söluna er um 50 milljónir króna, en líklegt er talið að blaðið fáist fyrir lægri upphæð. Skuldir fylgja ekki með.
Fleiri hafa sýnt DV áhuga án þess að það hafi leitt til tilboðs, þar á meðal umsvifamikill tímaritaútgefandi og þjóðkunnur almannatengill sem starfað hefur fyrir þekktustu útrásarvíkingana.
