Samstarf lögregluembætta í Evrópu er ekki betra en svo að eftirlýstir glæpamenn komast inn til Íslands án fyrirhafnar. Finnast hér árlega tíu til fimmtán einstaklingar sem eftirlýstir eru fyrir ýmsa glæpi í heimalandinu og tekur framsal langan tíma.
Frá þessu skýrir RÚV en þessar upplýsingar komu fram þegar ljóst varð að Pólverji sá er dæmdur var í farbann vegna gruns um að hafa valdið barni sínu alvarlegum skaða er eftirlýstur í heimalandinu fyrir ýmsa glæpi. Er þar um að ræða alvarlegri glæpi á borð við líkamsárás sem og efnahagsglæpi og fjársvik. Þá hefur maðurinn einnig komist í kast við lögin í Póllandi sökum ölvunaraksturs.
Framsal þeirra manna sem staðfest er að séu eftirlýstir getur tekið æði langan tíma og frá vikum og upp í nokkra mánuði. Hafa þeir sem á annað borð komast inn í landið ýmis úrræði sér til aðstoðar
