Þriðjudagur - 16.3 2010 - 12:20 - Ummæli ()

Grunur um skattaundanskot bankanna. Sérstök sveit skattrannsóknarstjóra í málið

isl-bankar.jpgSkattrannsóknarstjóri hefur skipað sérstaka sveit manna sem ætlað er að kanna hvort gömlu bankarnir þrír hafi skipulega komið hundruð milljörðum króna undan skatti. Leikur á því rökstuddur grunur eftir sérstaka úttekt skattrannsóknarstjóra í samvinnu við Ríkisskattstjóra.

Pressan greinir frá þessu en þar kemur fram að skattayfirvöld hafi komist að því að bankarnir hafi allir haft yfir að ráða óframtalda skattstofna og sé um verulegar upphæðir þar að ræða. Talað er um að heilt ólöglegt hagkerfi hafi verið við lýði hjá bönkunum við hlið þess löglega.

Sérstök 20 manns sveit fer nú ofan í kjölinn á þessu og beinist rannsóknin fyrst og fremst að stjórnendum og eigendum bankanna enda ljóst að engin svört starfsemi hefur farið fram án þeirrar vitundar og samþykkis. Gæti rannsóknin sú tekið tíma því um flókin viðskipti er að ræða sem rannsaka þarf; viðskipti með afleiður, hlutabréf, gjaldeyri og afskriftir lána og fleira í þeim dúr. Alls munu vera um 150 einstök slík mál nú til rannsóknar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar