Þriðjudagur - 16.3 2010 - 11:30 - Ummæli ()

He Pingping: Minnsti maður heims látinn

Heimsins minnsti maður, He Pingping, lést síðasta laugardag aðeins 21 árs.

pingpingsad.jpg

He Pingping var við tökur á sjónvarpsþætti þegar hann byrjaði að kvarta undan hjartverkjum. Honum var samstundis ekið á spítala en læknum tókst ekki að bjarga honum.

Heimsmetabók Guinness úrskurðaðið PingPing sem minnsta mann jarðar árið 2008 en hann var aðeins 73 sentimetrar.

Ritstjóri heimsmetabókarinnar lét þessi orð falla um He Pingping:

“Frá því að ég sá hann fyrst vissi ég að He Pingping var mjög sérstakur maður -hann hafði svo glúrið bros og var svo stríðinn, hann gat ekki annað en heillað mann. Pingping færði birtu og il í líf allra sem hann kynntist og hann virkaði hvetjandi á alla þá sem eru skilgreindir öðruvísi eða óvenjulegir.“


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar