Velgerðarsjóðurinn Aurora veitti í dag hundrað milljónum króna til fjögurra verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar en þetta er í þriðja skipti sem veitt er úr sjóðnum.
Frá stofnun hefur verið ráðstafað alls 322 milljónum króna en á sama tíma hefur stofnfé sjóðsins, sá milljarður króna sem Ólafur og eiginkona hans, Ingibjörg Kristjánsdóttir, lögðu sjóðnum til í upphafi árs 2007 aukist um sömu upphæð.
Styrkþegar nú eru Brúðuheimar í Borgarnesi sem fá alls fimmtán milljónir úthlutað. Helmingur þess er þó reyndar aðeins lán en ekki styrkur. Þá fá tveir undirsjóðir Auroru, hönnunar- og tónlistarsjóður, samtals 45 milljónir og að síðustu er 40 milljónum veitt til menntaverkefnis í Afríkuríkinu Sierra Leone.
Fram kemur í fréttatilkynningu Auroru vegna styrkveitinganna nú að sjóðurinn hafi á þeim þremur árum sem liðin eru síðan hann var stofnaður ávaxtast vel. Stendur stofnfé Auroru nú í 1,3 milljarði króna þrátt fyrir 322 milljóna króna úthlutanir.
Styrkþegar
Hönnunarsjóður Auroru fær 25 milljónir króna til að styðja hönnuði og aðstoða þá við vöruþróun, frumframleiðslu og markaðssetningu hérlendis og erlendis. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar 2009 að frumkvæði Auroru velgerðasjóðs og var þá úthlutað 25 milljóna krónum til ráðstöfunar.
Kraumur, tónlistarsjóður Auroru fær 20 milljónir króna til að styrkja ungt tónlistarfólk til listsköpunar og til kynningar á verkum sínum. Kraumur var stofnaður í ársbyrjun 2008 að frumkvæði Auroru velgerðasjóðs og er þetta í þriðja sinn sem sjóðurinn fær þessa upphæð til úthlutunar. Markmið með stofnun sjóðsins var m.a. að styrkja unga tónlistarmenn á Íslandi með beinum fjárstuðningi, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi.
Menntaverkefni í Afríkuríkinu Síerra Leóne fær 40 milljónir króna til að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga. Þetta er þriðja úthlutun sjóðsins til verkefnisins af fimm, liður í veigamesta verkefni sjóðsins frá stofnun og unnið í samvinnu við menntayfirvöld þar í landi og UNICEF á Íslandi og í Síerra Leóne. Alls hefur verið ráðstafað 156 milljónum króna á fjórum árum til verkefnisins í Síerra Leóne, að meðtöldum 36 milljónum króna sem stofnendur sjóðsins lögðu áður í byggingu 50 skóla í fátækustu héruðum landsins.
Brúðuheimar fá 15 milljónir króna til uppbyggingar lista og menningarmiðstöðvar í Englendingavík í Borgarnesi. Þar af eru 8 milljónir króna í formi styrks til hönnunar og uppbyggingar á leikbrúðusafni en 7 milljónir króna í formi láns til frágangs lóðar og húsakosts. Lánið er til 5 ára og afborgunarlaust fyrstu þrjú árin. Þetta er í fyrsta skipti sem Aurora velgerðasjóður veitir fé í formi láns og sjóðurinn hefur áhuga á að horfa í framtíðinni enn frekar til slíkrar lánastarfsemi í stuðningi sínum, þegar það á við, sérstaklega varðandi verkefni sem byggjast á atvinnurekstri.
