Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir það ekki hlutverk ráðuneytis síns að beina almennum tilmælum til stofnana á borð við Seðlabanka Íslands eða Fjármálaeftirlitsins.
Ber ráðherrann fullt traust til beggja stofnanna sem er í hróplegu ósamræmi við skoðanir almennings í landinu sem ber afskaplega takmarkað traust til umræddra stofnanna.
Samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Capacent njóta stofnanir er undir efnahags- og viðskiptaráðherra heyra afar lítils trausts meðal almennings. Hefur það álit fólks í landinu tekið litlum breytingum frá fyrra ári þrátt fyrir að skipt hafi verið um yfirstjórn bæði hjá Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu í millitíðinni.
Mælist traust almennings til Seðlabankans 15 prósent nú en mældist 11 prósent fyrir ári. Fjármálaeftirlitið fær mun verri útkomu en aðeins 11 prósent aðspurðra í könnun Capacent þykir það embætti traustvekjandi. Hefur það breyst aðeins til batnaðar milli ára en aðeins 5 prósent þótti sú stofnun traustsins verð árið 2009.
Langversta útreiðina, sem fyrr, fær bankakerfið almennt en aðeins 5 prósent landsmanna ber mikið traust til þess en sá fjöldi mældist 4 prósent fyrir ári síðan.
Eyjunni lék forvitni að vita hug Gylfa Magnússonar til þessa en stofnanir ríkisins sem ekki hafa til að bera almennt traust almennings í viðkomandi landi hljóta að teljast afar veikburða stofnanir. Ítrekar Gylfi að sjálfur beri hann fullt traust til Seðlabankans og FME og engin ígrip séu fyrirhuguð af hálfu ráðuneytisins í starfsemi þessara stofnana.
„Það kemur ekki á óvart þegar staðfest er í skoðanakönnunum að margar af helstu stofnunum samfélagsins njóti takmarkaðs trausts almennings. Með því að skipta um yfirstjórnir í Seðlabanka og FME á útmánuðum 2009 var stigið ákveðið skref í að skilja við fortíðina og endurvekja traust á þessum stofnunum, en þar með var auðvitað ekki fullur sigur unninn. Einhver tími kann að líða þar til merkjanleg breyting verður á viðhorfi almennings til þeirra sem forræði fara með fjármálakerfi þjóðarinnar.“
Þar sem Seðlabankinn og FME eru sjálfstæðar stofnanir er það ekki hlutverk ráðuneytisins beina fyrirmælum til þeirra um innra skipulag þeirra, ákvarðanir þar að lútandi eru á forræði og ábyrgð yfirstjórna stofnananna. Ráðherrann ber hinsvegar fullt traust til yfirstjórna Seðlabankans og FME og telur að þær vinni af fullum heilindum að því að endurskoða sitt innra starf og endurvekja traust almennings.“
