Notkun Dana á samskiptavefnum Facebook kostar danskt atvinnulíf 11 milljarða danskra króna, eða um 250 milljarða íslenskra króna á ári.
1,9 milljónir Dana á aldrinum 16 til 65 ára eru nota Facebook og er talið að 91% þeirra vafri þar í allt að hálftíma á dag að öþörfu í vinnutímanum. 5% starfsmanna liggja 30-60 mínútur daglega á Facebook og 4% enn lengur.
Þetta er niðurstaða rannsóknar á vegum samtaka atvinnulífsins í Danmörku (Dansk Erhverv), sem sagt er frá í viðskiptablaðinu Börsen. Danir og Íslendingar eru í hópi þriggja landa í heiminum þar sem meirihluti þjóðarinnar notar Facebook.
Séu þessar tölur heimfærðar á Ísland, miðað við fólksfjölda og samskonar notkun á facebook í vinnutímum, þá ætla að kostnaður hér á landi sé nálægt 15 milljörðum króna á ári.
Enda þótt Facebook eigi að geta nýst til að efla viðskiptasambönd virðast fáir starfsmenn hafa slíkt gagn af vefsíðunni, því aðeins 7,8% af dönskum notendum miðilsins eru taldir nýta hann í þágu starfsins.
„Facebook notkun á vinnustöðum er greinilega mikið vandamál,“ segir Charlotte Vester framkvæmdastjóri hjá Dansk Erhverv. „Það kom okkur hinsvegar á óvart hve útbreidd hún er. Þetta kemur niður á framleiðslunni og getur dregið úr samkeppnishæfni.“
Anders Colding-Jörgensen sálfræðingur segir að það geti verið starfsmönnum til góða ef vinnuveitendur takmarki notkun Facebook meðal starfsmanna sinna. Facebook skapi fíkn hjá sumum og sé mikill tímaþjófur.
215
97