Þriðjudagur - 16.3 2010 - 11:34 - Ummæli ()

Kristján Þór: Steingrínur J. á að segja af sér, er sjálfum sér og öðrum til ama

kristjan-thor-juliusson.jpgKristján Þór Júlíusson, þingismaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, eigi að segja af sér. Í grein í Morgunblaðinu í dag lætur Krisján Þór í ljós þá skoðun sína að Steingrímur sé  þreyttur maður, sjálfum sér og öðrum til ama, og eigi að víkja.

Kristján Þór bendir á að fjármálaráðherra sæti gagnrýni frá fjölmörgum aðilum, einkum vinnumarkaðinum, svo sem frá BSRB, Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins og ASÍ.

„Hvað veldur því að ríkisstjórnin bregst ekki við þessum áköllum? „Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Fullkomin uppgjöf blasir við. Það er úrræðalaus maður og ekki til varðstöðu fallinn sem þannig talar. Þreyttur maður leggur ekki eyrun við því sem við hann er sagt. Þreyttur maður er sjálfum sér og öðrum til ama. Þreyttur maður gerir sjálfum sér og öðrum best með því að víkja,“ skrifar Kristján Þór.

Þá segir Kristján Þór að skoðanasystkin Steingríms J., þ.e. þau sem telji ákall um úrbætur „marklaust tal“, séu örugglega enn færri en þau 1,8% þjóðarinnar sem greiddu atkvæði með samningi hans um Icesave.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar