Þriðjudagur - 16.3 2010 - 15:39 - Ummæli ()

Landið skal verða að einu kjördæmi verði nýtt frumvarp að lögum. Jafna skal vægi atkvæða

bjorgvin-g5.jpgLagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi þess efnis að gera landið allt að einu kjördæmi í kosningum. Telja þeir sem að frumvarpinu standa tími til kominn að vægi atkvæða verði jafnað en hingað til hefur vægi landsbyggðarfólks verið ívið meira en vægi fólks á þéttbýlli svæðum suðvestanlands.

Að frumvarpinu standa alls nítján þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki og er Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu, fyrsti flutningsmaður þess.

Forvitni Eyjunnar var vakin á hvers vegna Sjálfstæðismenn væru þeir einu sem ekki koma að frumvarpinu en öllum formönnum flokka á þingi var send tilkynning um málið og beiðni um stuðning. Eitthvað hefur það skolast til því þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem Eyjan ræddi við komu af fjöllum aðspurðir.

Segir í frumvarpinu að grundvallaratriði sé að gera landið að einu kjördæmi og þannig leggja að jöfnu öll atkvæði kosningabærra í landinu hvar sem þeir búa. Er gengið svo langt að segja að um hreint og beint mannréttindamál sé að ræða. Þykir þó ljóst að vanda beri mjög til verka enda kalli slíkt á breytingar á stjórnarskrá landsins og ekki megi kasta til hendinni við undirbúning. Gefa þurfi sér góðan tíma og hann sé fyrir hendi nú á vordögum að mati flutningsmanna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar