Þrátt fyrir ítrekaðar óskir Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um að fá upplýsingar frá Seðlabankanum um heildarfjölda meintra brota á gjaldeyrislögum þurfti ráðherrann að gera sér að góðu að fá umræddar upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu til að svara fyrirspurn á Alþingi.
Fór Ásbjörn Óttarsson, Sjálfstæðisflokki, fram á að fá vitneskju um þann fjölda meintra brota á gjaldeyrislögum sem Seðlabankinn hefur hingað til tilkynnt Fjármálaeftirlitinu.
Kemur í ljós í svarinu að mál 28 lögaðila eru þar til rannsóknar nú en tekið fram að mögulega væru málin fleiri sem Seðlabanki vissi um og ekki hefðu enn borist FME.
Í svari ráðherra kemur ennfremur fram að reynsla sýni að meðan svo stífar reglur og hömlur gildi um gjaldeyrismál sé einkar mikilvægt að endurskoða sífellt reglur um gjaldeyrismál. Þörf sé á öflugu eftirliti en ekki síður þurfa reglurnar að vera sveigjanlegar og jafnframt auðveldar í framkvæmd.
