Mörgum þeim er eiga leið um Kópavogshöfn blöskrar orðið hve lengi togari einn, Lómur 2, hefur legið þar við bryggju en þar hefur umræddur togari verið óhreyfður um hartnær tveggja ára skeið. Hindrar togarinn að höfnin sé nýtt sem skyldi en nú sér loks fyrir endann á málinu því uppboð er framundan á togaranum.
Lómur 2 sem er veglegur togari var í eigu íslenskra aðila þó heimahöfn hans væri skráð í Eistlandi en segja má að honum hafi verið siglt beint inn í bankahrunið því frá þeim tíma hefur hann ekki verið hreyfður og aðeins ryðgað í millitíðinni. Er nú svo komið að hann hindrar að önnur starfsemi þrífist í Kópavogshöfn enda nokkrir aðilar sýnt því áhuga að komast þar að með skip sín og fyrirtæki.
Segir hafnarvörður, Júlíus Skúlason, engan vafa leika á að höfnin hafi orðið af töluverðum tekjum vegna skipsins sem hafi legið þarna óhreyft vegna fjárhagsörðugleika fyrrum eigenda. Nú standi hins vegar loksins til að bjóða skipið upp og ætti Kópavogsbær þá mögulega að fá greidd að hluta eða öllu leyti þriggja milljóna króna hafnargjöld sem á skipinu hvíla og ekki síður að nýr eigandi sigli honum brott.
