Þriðjudagur - 16.3 2010 - 17:13 - Ummæli ()

Svört skýrsla Byggðastofnunar um framtíð stofnfjáreigenda í fyrrum Sparisjóði Húnaþings og Stranda

leiguibudir.jpgSkýrsla sem Byggðastofnun hefur látið gera vegna þess bága fjárhagsástands sem fjöldi stofnfjáreigenda í fyrrum Sparisjóði Húnaþings og Stranda glímir við dregur upp dökka mynd af stöðu mála. Stofnunin sem slík er ófær um að koma að úrlausn mála fyrir þá 137 einstaklinga sem margir tóku stór lán til að kaupa stofnfé sem nú er að langmestu leyti glatað. Gjaldþrot blasa við.

Eyjan hefur skýrsluna undir höndum og kemur þar fram að staðan sé að hluta til erfiðari en annars staðar sökum þess hve margir í litlu sveitarfélagi sé þarna um að ræða. Talið er nærri lagi að heildarskuldir vegna stofnfjárkaupanna nemi í heild um þremur milljörðum króna en á það er bent til samanburðar í skýrslu Byggðastofnunar að heildarlaunatekjur allra vinnandi manna á svæðinu sem um ræðir á ársgrundvelli sé um tveir milljarðar.

Stærstu kröfuhafar í sparisjóðnum fyrrverandi eru Sparisjóður Keflavíkur og Landsbankinn. Báðir aðilar frestuðu öllum gjalddögum sem vera áttu í lok árs 2009 fram til þessa árs en nú fer að líða að skuldadögum og staðan er síst betri en fyrir áramót hjá velflestum sem hlut eiga að máli. Horfa þeir flestir fram á gjaldþrot að óbreyttu.

Kemur einnig fram í skýrslunni að margir hafi sett jarðir sínar að veði fyrir kaupum en í Húnaþingi og í Bæjarhreppi er landbúnaður algjör uppistaða í atvinnulífi á staðnum. Hætta sé því á að í framtíðinni fari margar jarðir í eyði og sé ekki á það bætandi enda margar hlunnindajarðir undanfarin ár verið seldar aðilum utan svæðisins til frístunda.

Niðurlag skýrslu Byggðastofnunar segir meira en mörg orð: Áfallið mun verða mjög þungbært fyrir byggðina og langan tíma mun taka að reisa samfélagið við.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar