Miðvikudagur - 17.3 2010 - 15:50 - Ummæli ()

Afmælisbarn dagsins: Ofurskinkan Coco er 31 árs í dag

Eiginkona bandaríska rapparans Ice-T heitir Coco Austin og fagnar hún 31 árs afmæli sínu í dag en Coco er fædd 17 mars árið 1979.

Flestir þekkja Coco af íturvöxnum líkamanum en hún hefur þó fleiri hæfileika, enda af leikaraættum.

c412.jpg

Foreldrar Coco eru bæði leikarar en þau kynntust við tökur á Bonanza þætti. Coco á ennfremur yngri systur og bróður. Þegar bróðir hennar var lítill gat hann ekki borið rétta nafn Coco fram, sem er Nicole, og kallaði hana þannig Coco.

Gælunafnið festist og nú er þessi dama eingöngu þekkt sem Coco.

Coco var fjórtán ára þegar hún vann fyrirsætukeppni í Beverly Hills en verðlaunin voru leiklistarnám í Beverly Hills Studio þar sem hún kynntist meðal annars Jessicu Alba og Hillary Swank.

Átján ára byrjaði hún að sitja fyrir í baðfötum en síðan hefur Coco unnið ótal fegurðarsamkeppnir, setið fyrir í fjöldanum öllum af blöðum, leikið í nokkrum b myndum og komið fram í nokkrum sjónvarpsþáttum. Til dæmis Law and Order og The Late Show.

Smellið hér til að skoða myndasafn af „ofurskinkunni“ knáu henni Coco sem á afmæli í dag, er 31 árs og því komin á fertugsaldur.

 <  1 af 7 > 
Afmælisbarn dagsins er stolt af þjóhnöppunum og klæðist efnislitlum kjól.

Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar