Björn Valur ekki hrifinn af einkareku hernaðarfyrirtæki á Keflavíkurflugvelli
Þungavigtarmaður í stjórnarliðinu, Björn Valur Gíslason þingmaður VG, segist ekki vera áhugasamur um að hér á landi verði starfrækt einkarekið fyrirtæki í heriðnaði.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Fram kom að semja þarf sérstakar reglugerðir í samgönguráðuneytinu ef hugmyndir hollensks fyrirtækis sem vill skrá 20 herþotur hér á landi og nota þær til heræfinga eiga að verði að veruleika. Um 200 milljarða fjárfestingu er að ræða ef allt gengur eftir.
Í Fréttablaðinu í dag segir að hollenska fyrirtækið ECA Programs bíði pólitískra ákvarðana íslenskra stjórnvalda um hvort fyrirtækinu verði leyft að skrá 20 herþotur hér á landi. Hollenska fyrirtækið áformar að leigja þessar vélar til heræfinga þar sem þær myndu gegn hlutverki óvinavéla í heræfingum NATO-ríkja og bandamanna þeirra.
„Það eru ýmis atriði sem þurfa að vera í lagi svo þetta geti gengið upp. Til dæmis þarf að setja um þetta sérstakar reglugerðir um það hvernig þetta getur fallið að íslenskum lögum. Það eru ekki mörg fordæmi um þetta í heiminum þannig að það er geysileg vinna sem á eftir að eiga sér stað til þess að þetta geti gengið upp,“ sagði Ingvar Sverrisson aðstoðarmaður samgönguráðherra í viðtali við Bylgjuna.
Björn Valur Gíslason sem er formaður samgöngunefndr Alþingis lagði áherslu á að málið þyrfti að fara í gegn um pólitíska umræðu bæði í ríkisstjórn og á Alþingi áður hugmyndir hollenska fyrirtækisins gætu orðið að veruleika.
Í Fréttablaðinu í dag kom fram að forstjóri EVA Programs neitar að gefa upp hverjir eru eigendur fyrirtækisins. Hann segir þó að Íslendingar séu ekki í þeim hópi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
