Sá böggull virðist fylgja því skammrifi að eftir að leikkonur hafa þegið Óskarsverðlaun líður ekki langur tími þar til þær skilja við karlana sína.
Þetta gerðist hjá Charlize Theron, Hilary Swank, Reese Witherspoon og núna er Kate Winslet að skilja við sinn karl…

Og ef marka má In Touch Weekly þá líður kannski ekki á löngu þar til Sandra Bullock hendir sínum út en að sögn tímaritsins hefur hann staðið í svæsnu framhjáhaldi í um 11 mánuði.
Meðan Sandra var við tökur á óskarsverðlaunamyndinni The Blind Side í Atlanta var spúsinn á fleygiferð með fyrirsætu sem hafði samband við hann í gegnum Facebook. Stúlkan sú heitir Michelle McGee en hún hafði í hyggju að vinna fyrir Jesse James (svo heitir spúsinn) hjá fyrirtæki hans West Coast Choppers og hugsanlega sitja fyrir á nokkrum myndum.
Fljótlega eftir að hún setti sig í samband við hann bað hann hana að skrifa sér frekar tölvupóst og ekki leið á löngu þar til hann boðaði hana í viðtal. Þar „horfðu þau á mynd saman“ en áður en Jesse ýtti á „play“ takkann spurði Michelle hann hvar Sandra væri.
Hann kvað eiginkonu sína vera búsetta annarsstaðar og að hann vildi ekki ræða það mikið frekar. Þar með taldi Michelle öllu óhætt og hóf samband við Jesse sem einkenndist af mikilli ástríðu og fundum um það bil þrisvar sinnum í viku.
Nú á alveg eftir að koma í ljós hvað Sandra segir um málið en hún hefði getað sagt sér sjálf að Jesse væri enginn kórdrengur. Hann var áður giftur klámstjörnunni Janine Lindemulder en saman háðu þau Sandra og Jesse mikla baráttu til að fá forsjá yfir dóttur þeirra Jesse og Janine.
Hér má svo sjá myndir af hinni húðflúruðu og glennulegu stúlku sem Jesse á að hafa lagt lag sitt við.
