Einkarekinn hollenskur flugher bíður eftir ákvörðun stjórnvalda. 200 milljarða fjárfesting
Hollenska fyrirtækið E.C.A. Program bíður pólitískra ákvarðana íslenskra stjórnvalda um hvort leyft verði að skrá flugflota fyrirtækisins hér á landi. Fyrirtækið er með áform um 200 milljarða króna fjárfestingu og vill meðal annars byggja viðhalds- og þjónustustöð með á þriðja hundrað íslenskra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli. Einkum er horft til flugvirkja, tölvunarfræðinga og annars sérþjálfaðs starfsfólks.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
Upphaflega stóð til að framkvæmdir hér á landi hæfust í janúar svo starfsemi fyrirtækisins gæti hafist í haust. Slíkt gekk hins vegar ekki eftir. Meðal annars er áætlað að breyta stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli. Það verkefni mun kosta allt að 4,5 milljarða króna.
E.C.A. er einkarekið hernaðarfyrirtæki sem starfar við hernaðartengda starfsemi. Fyrirtækið á meðal annars vopnlausar, rússneskar orrustuþotur sem leigðar verða til heræfinga og gegna þar hlutverki óvinahers.
Melville ten Cate, forstjóri E.C.A. Program, segir næg viðskipti í boði. Meðal viðskiptavina eru herir NATO-þjóða og ríkja sem eru hliðholl Vesturlöndum eins og Japan, Singapúr og Ástralía.
„Við erum hernaðarfyrirtæki í einkaeigu,“ segir ten Cate. „Við erum ólíkir fyrirtækjum eins og Blackwater. Starfsmenn okkar ganga ekki með byssur.“
E.C.A. hefur rekið flutningaþjónustu víða um heim, meðal annars í Afganistan og Darfúr. Ten Cate segir að fyrirtækið selji flugstundir líkt og önnur þjónustufyrirtæki selji pitsur eða aðra þjónustu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
