Íslenska ríkið fær allt opinbert framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar tilbaka að fullu samkvæmt úttekt sem Félag kvikmyndagerðarmanna hefur látið framkvæma. Sannar það mál margra innan greinarinnar sem haldið hafa slíku fram um tíma án þess þó að hafa gögn því til staðfestingar.
Lét Félagið gera úttekt meðal framleiðenda 140 kvikmynda sem gerðar hafa verið hér á landi og um 80 prósent aðspurðra svöruðu fyrirspurnunum. Meginniðurstöðurnar eru að samtals framleiðslukostnaður þessara 140 verka nam rétt tæpum 12 milljörðum króna. 13 prósent framleiðslukostnaðar kom úr kvikmyndasjóðum, 9 prósent var í formi endurgreiðslna af framleiðslukostnaði frá Iðnaðarráðuneyti. Þá var 34 prósent annað innlent fjármagn og 44 prósent kostnaðar kom erlendis frá.
Samhliða þessu var launahlutfall kannað í lykilverkefnum af þeim sem könnunin tók til. Niðurstaðan er að rúm 72 prósent framleiðslukostnaðar voru launagreiðslur. Þessir tveir liðir tryggðu ríkissjóði greiðslur í formi skatttekna um 2,7 milljörða króna eða að fullu það framlag sem opinberir aðilar lögðu í fjármögnun verkefnanna.
