Miðvikudagur - 17.3 2010 - 18:16 - Ummæli ()

Félags- og tryggingamálaráðherra sjálfur með bílalán. Enn unnið að útfærslum vegna slíkra lána

arnipall.jpgFélags- og tryggingaráðherra, Árni Páll Árnason, er sjálfur með eitt bílalán á bíl í eigu fjölskyldunnar samkvæmt upplýsingum sem Eyjan hefur aflað sér. Unnið er að því hörðum höndum innan ráðuneytis Árna að finna lausnir á skuldavanda þeirra sem reistu sér hurðarás um öxl við bílakaup. Bílalán ráðherrans er þó að fullu í skilum. Það er verðtryggt í íslenskum krónum og flokkast því ekki með þeim lánum sem eru til umfjöllunar í ráðuneyti hans.

Á miklum blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag voru kynntar fjölmargar aðgerðir til lausna skuldavanda heimila í landinu umfram það sem áður hafði verið gert. Hluti þess voru aðgerðir vegna bílalána og bílasamninga og tiltekin þar fjögur meginmarkmið.

  • Unnið að útfærslum í samvinnu við eignarleigufyrirtækin
  • Markmiðið að tryggja sanngjarna lausn – allir lántakendur verða að axla ábyrgð
  • Mikilvægt að þeir sem tóku áhættu beri hana – jafnt einstaklingar sem fyrirtæki
  • Mikilvægt að þeir sem sýndu fyrirhyggjusemi í lántökum njóti hennar líka

Eyjan spurðist fyrir um raunverulega þýðingu þessara markmiða stjórnvalda en ekki er hægt að veita þau svör að svo stöddu þar sem ýmsar viðræður vegna þessa eru enn í gangi og nánar útfærslur á þessum markmiðum liggja ekki fyrir.


Facebook síða Twitter síða RSS straumar