Miðvikudagur - 17.3 2010 - 05:54 - Ummæli ()

Íbúðalánasjóður á 570 íbúðir. Nokkrar íbúðablokkir lentu á sjóðnum á Austurlandi

ibudalanasjodur.jpgÍbúðalánasjóður á nú 570 íbúðir, samkvæmt tölum sem teknar voru saman fyrir fund fjárlaganefndar Alþings í gær.

Morgunblaðið segir frá þessu í dag. Fram kemur í blaðinu að sjóðurinn hyggist nú leigja út fleiri íbúðin en hann hefur gert til þessa.

Holskefla íbúða á Austurlandi lenti á sjóðnum um síðustu mánaðamót, vegna þrots íbúðaleigufélags sem átti sjö stórar blokkir, fjórar á Reyðarfirði og þrjár á Egilsstöðum.

Við það eignaðist sjóðurinn 120 íbúðir á einu bretti, en alveg frá hruni haustið 2008 hefur íbúðum í eigu sjóðsins fjölgað mjög. Þannig átti Íbúðalánasjóður að sögn Guðmundar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra sjóðsins, að jafnaði um og yfir fimmtíu íbúðir hverju sinni fram að hruni.

Flestar íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs eru á Austurlandi, 180 talsins. Á Suðurlandi á sjóðurinn tæplega hundrað íbúðir og sama fjölda íbúða á Suðurnesjum. Á öðrum stöðum á sjóðurinn færri eignir, t.d. aðeins 30 í Reykjavík.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar