Miðvikudagur - 17.3 2010 - 13:47 - Ummæli ()

Menningarmálaráðherra: Telur fjármunum til listamannalauna vera vel varið

katrin_jakobsdottir_vef.jpgKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er þeirrar skoðunar að fjármunir þeir er ríkið lætur listamönnum í té í formi listamannalauna sé þannig vel varið.

Segir hún við Eyjuna lítinn vafa leika á að lista- og menningarlíf landsmanna væri alls ekki jafn fjölbreytt og lifandi eins og raun ber vitni ef ekki kæmi til slíkar greiðslur til listafólks.

Hart er nú deilt í fjölmiðlum um gildi listamannalauna í kjölfar skoðanakönnunar sem sýnir að meirihluti landsmanna er því mótfallin að ríkið skuli greiða listamannalaun. Könnun þessa framkvæmdi MMR og sýna niðurstöður hennar að 61,4% sem spurðir voru reyndust frekar eða mjög andvíg því að ríkið greiði listamannalaun.

Katrín segir málið flókið og sýnir því skilning að slíkt sé umdeilt nú um stundir en bendir á að önnur nýleg könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans sýni svo ekki verði um villst að meirihluti Íslendinga almennt sæki list- eða menningarviðburði af ýmsu tagi reglulega. Sú könnun, þó almennari sé, sé önnur hlið á sama peningi.

„Það verður að líta á heildarmyndina í svona tilfellum. Það má ekki rugla saman listamannalaunum og heiðurslaunum eins og mér sýnist gerast í einhverjum tilvikum. Listamannalaun fær enginn nema fara fyrir úthlutunarnefnd sérstaka og til sérstaks verkefnis og því er fylgt eftir. Að mínu viti er fjármunum til listamannalauna vel varið.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar