Miðvikudagur - 17.3 2010 - 09:57 - Ummæli ()

Mikil andstaða við listamannalaun. Sex af hverjum tíu á móti því að ríkið greiði listamönnum laun

listasafnislands.jpgNý skoðanakönnun leiðir í ljós að mikill meirihluti kjósenda er andvígur því að ríkið greiði listamannalaun. 61,4% sem spurðir voru reyndust frekar eða mjög andvíg því að ríkið greiði listamannalaun.

Könnunin var gerð á vegum MMR.

Kannað var dagana 3. til 5. mars hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að ríkið greiði listamannalaun. Af þeim sem tóku afstöðu voru 61,4% sem sögðust frekar eða mjög andvíg greiðslu á listamannalaunum. Skipt eftir einstökum svörum voru 32,7% sem sögðust mjög andvíg, 28,7 sögðust frekar andvíg. 28,8% sögðust frekar fylgjandi og 9,8% sögðust mjög fylgjandi því að ríkið greiði listamannalaun.

Samtals tóku 92,5% afstöðu til spurningarinnar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar