Innlent - miðvikudagur - 17.3 2010 - 13:11

Opnu söluferli á Securitas skyndilega lokað. Bjóðendur margir hræddir við gagnsæi

securitas-logo-44a62aefc8-seeklogocom.gifLögmannstofan JP sem sér um söluna á öryggisfyrirtækinu Securitas tilkynnti öllum bjóðendum í fyrirtækið með litlum fyrirvara fyrir skömmu að horfið hefði verið frá því að hafa söluferlið opið og gegnsætt. Reyndist ástæðan sú að allmargir aðilar sem áhuga höfðu að gera tilboð kærðu sig lítt um að nöfn þeirra yrðu gerð opinber eins og til stóð.

Tók skiptastjóri þá ákvörðun að loka ferlinu og framlengja tilboðsfrest um eina viku og í kjölfar þess bárust mun fleiri tilboð. Um óskuldbundin tilboð var að ræða og alls 45 aðilar sýndu Securitas áhuga. Átján þeirra reyndust uppfylla þær kröfur sem gerðar voru til bjóðenda og hafa nú átta aðilar verið valdir úr þeim hópi og koma þeir allir sterklega til greina og uppfylla öll skilyrði.

Samkvæmt heimildum Eyjunar þykir stöku bjóðendum ýmislegt gagnrýnivert við ferlið. Þykir til dæmis athugavert að tilboðin voru aðeins opnuð í viðurvist skiptastjóra og lögmanna JP sem í reynd er einn og sami aðilinn. Þykir ekki heldur til eftirbreytni að nýskipaður skiptastjórinn Óskar Sigurðsson gerði sjálfan sig umsvifalaust að stjórnarformanni Securitas.

Þá hafa verið gerðar athugasemdir við að einn helsti lögmaður JP, Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, hefur komið töluvert að tilboðsferlinu en meðal þeirra átta tilboða sem þykja hvað fýsilegust er eitt frá félaginu Specter ehf. sem er í meirihlutaeigu Finns Ingólfssonar sem lengi var ráðherra fyrir þann flokk.

Aðspurður um aðkomu sína sagði Guðjón Ólafur hana hafa verið afar takmarkaða og yfir ferlinu væru aðrir aðilar en hann sjálfur.

Ráð var fyrir gert að tilkynnt yrði um söluna þann 27. þessa mánaðar en að sögn Fróða Steingrímssonar, sem sér um ferlið fyrir hönd JP, er ekki útilokað að það frestist eitthvað. Mun fleiri tilboð hafi borist en von var á og frestur til að leggja inn tilboð framlengdur þannig að ekki sé útilokað að ákvörðun liggi fyrir síðar en það.

Securitas hefur undanfarin ár verið í eigu Fons, félags Pálma Haraldssonar, en það félag fór í þrot á síðasta ári. Þykir öryggisfyrirtækið afskaplega bitastætt og lífvænlegt meðal þeirra fjárfesta sem þekkja vel til íslenska markaðarins nú um stundir.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.

Facebook vinir