Miðvikudagur - 17.3 2010 - 15:53 - Ummæli ()

Ríkisstjórnin kynnir fjölmörg frekari úrræði til að bæta erfiða stöðu heimila í landinu

medium_johanna_sigurdardottir_vef_2003488892.pngRíkisstjórn Íslands kynnti í dag fjölmörg ný úrræði til hjálpar skuldsettum heimilum landsins og er ýmislegt þar á ferð sem ekki hefur staðið fólki almennt til boða fyrr en nú.

Meðal annars er lagt til stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp og brátt mun taka til starfa nýtt embætti umboðsmanns skuldara sem verður talsmaður skuldara gagnvart lánastofnum.

Ríkisstjórnin öll kynnti áætlun sína í dag á blaðamannafundi en stjórnvöld hafa endurskoðað frá grunni allar aðgerðir sínar til hjálpar þeim er verst standa eftir bankahrunið í október 2008. Alls hafa, samkvæmt mati stjórnvalda, allt að 80 þúsund manns notið þeirra úrræða sem staðið hafa til boða hingað til.

Ný úrræði

Það sem nýtt er nú er stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp sem verður nú beint félagslegt úrræði en ekki vægt form gjaldþrots. Miklu fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem byggt verður á traustum grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Umboðsmaðurinn verður talsmaður lántakenda gagnvart lánadrottnum og er ekki hlutlaus.

Annað sem nýtt er:

  • sérstök úrræði fyrir þá sem eru tekjulágir eða hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli
  • úrræði fyrir fólk með tvær eignir
  • enn lægra hámark á dráttarvexti
  • við nauðungarsölur verður markaðsvirði eigna dregið frá kröfu
  • fólki gert kleift að búa í húsnæði í 12 mánuði þrátt fyrir nauðungarsölu/gjaldþrot
  • hámarksfjárhæðir innheimtukostnaðar takmarkaðar enn frekar
  • reglur um niðurfellingu skattkrafna endurskoðaðar
  • hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar
  • stórfelldar niðurfellingar skattlagðar
  • dregið úr vægi verðtryggingar

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar