Miðvikudagur - 17.3 2010 - 14:14 - Ummæli ()

Hernaðarandstæðingar vilja ekki herfyrirtæki í Keflavík. ECA Pro- gram fékk ekki starfsleyfi í Kanada

herthotur-keflavik.jpgSamtök hernaðarandstæðinga eru andvíg því að einkarekið fyrirtæki á sviði hernaðarmála, ECA Program, fái aðstöðu á Keflavíkuflugvelli eins og það hefur óskað eftir. Í ályktun sem stjórn samtakanna sendi fjölmiðlum er fyrirtækið kallað málaliðaher.

Í ályktun samtakanna segir:

SHA árétta þá afstöðu sína að starfsemi af þessu tagi eigi ekkert erindi hér á landi. Málaliðaher eins og hér um ræðir er eitthvert auvirðilegasta fyrirbæri mannlegrar tilveru. Markmið rekstursins er að þjálfa hermenn í drepa fólk í fjarlægum og fátækum löndum. Er það vilji íslensku þjóðarinnar að hafa slíka iðju að féþúfu?

Allt tal um vopnleysi starfsmanna fyrirtækisins er aumur fyrirsláttur. Þjálfun orrustuflugmanna og skipulagning heræfinga er og getur aldrei talist annað en hernaðarstarfsemi. Ljóst er að áform fyrirtækisins stangast á við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að Ísland skuli verða vettvangur friðarumræðu og vinna að afvopnun í heiminum.

SHA hvetja fjölmiðla til að grafast betur fyrir um fyrirtækið E.C.A. Program. Heimilisfang þess er pósthólf í smábæ í Hollandi og þótt forstjóri þess tali drýgindalega um verkefni þess um víða veröld, finnast um þau litlar heimildir. Ljóst er að E.C.A. Program er í dag hálfgert skúffufyrirtæki og væntanlega leppur fyrir öflugari fyrirtæki. Hver eru þau? Fyrir liggur að fyrirtækið sóttist eftir aðstöðu fyrir starfsemi sína í Kanada, en fékk ekki leyfi frá stjórnvöldum. Hvaða sjónarmið lágu þar að baki? Um þetta var m.a. fjallað í Dagfara, tímariti Samtaka hernaðarandstæðinga sem kom út seint á síðasta ári.

Á Orðinu á götunni á Eyjunni í dag kemur fram að E.C.A. Program birtir myndir frá Keflavíkurflugvelli á forsíðu vefsíðu sinnar og gefur þannig í skyn að það hafi þegar fengið aðstöðu þar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar