Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun að peningastefnunefnd bankans hefði ákveðið að lækka vexti. Verða stýrivextir bankans 9%.
Í frétt frá bankanum segir:
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 7,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 8,75%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 9,0% og daglánavextir í 10,5%.
