Einar Már: Listamannalaun eru engin ölmusa. Hvað eru Laxness og Jónas búnir að skila Íslandi?
Einar Már Guðmundsson rithöfundur segir að listamannalaun séu engin ölmusa. Hann minnir landsmenn á að þjóðfélagið hafi margvíslegan ávinning af starfi og sköpun listamanna. Þetta eru viðbrögð hans við könnun sem sýnir að um 60% landsmanna eru andvíg því að ríkið greiði listamannalaun.
Rætt er við Einar Má á vefritinu Smugunni.
Einar Már segir viðhorfið til listamannalauna sveiflukennt, Hann segir að núna sé góður jarðvegur til að æsa til andúðar. Í dulvitund þjóðarinnar búi það viðhorf að listamenn séu iðjuleysingjar.
,,Það er misskilningur að líta á þetta sem ölmusu til listamanna,“ er haft eftir Einari Má á SMugunni. Hann segir það lita þetta viðhorf sem könnunin sýni en hann verði þó ekki var við dags daglega. ,,Það er innheimtur söluskattur af bókum og einungis brot af honum rennur í launasjóð rithöfunda. Launasjóðurinn skapar höfundum næði til að vinna að verkum án þess að vera í kapphlaupi við tímann.“
Einar Már bendir á að arðurinn af ritlist verði ekki aðskilinn frá bóka og blaðaútgáfu, verslun með bækur og öllu sem af því leiði. ,,Hvað ætli HC Andersen sé búinn að skila Danmörku eða Laxness og Jónas Hallgrímsson.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
