Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er að vænta um eða eftir páska, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Skýrslan átti upphaflega að koma út í nóvember en þá var útgáfu hennar frestað fram í febrúar. Útgáfu hennar var svo aftur frestað en nú þykir ljóst að hún kemur ekki út fyrr en í kringum páska.
Komið hefur fram að prentaða skýrslan er í níu bindum, rúmar tvö þúsund síður, og verður prentuð í um þrjú þúsund eintökum. Þegar er byrjað að prenta viðauka skýrslunnar en þeir snúa meðal annars að siðferði, fjölmiðlum og hagsögu.
Nýverið kom fram að skýrslan er prentuð í prentsmiðjunni Odda og var því jafnvel reiknað með að hún gæti komið út á næstu dögum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er skýrslan þó eingöngu prentuð um helgar og því enn 2-3 vikur að útkomu skýrslunnar, en páskadagur er 4. apríl.
