Miðvikudagur - 17.3 2010 - 17:25 - Ummæli ()

Slitastjórn SPRON: Ýmislegt gruggugt í starfsemi SPRON fyrir yfirtöku. Málsóknir í undirbúningi

spron.jpgEkki virðist allt hafa verið með felldu í innri starfsemi SPRON í aðdragandi yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á sparisjóðnum og eru meiri líkur en minni að slitastjórn sjóðsins að málsóknir vegna riftunar- og skaðabótamála séu í farvatninu. Samkvæmt úttekt slitastjórnar sjóðsins lítur út fyrir að almennir kröfuhafar fái milli 10 og 12 prósent upp í kröfur.

Slitasstjórnin hélt fund með kröfuhöfum Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, í dag og gerði fundarmönnum grein fyrir stöðu mála. Eignir búsins eru 150 milljarðar króna að teknu tilliti til niðurfærslna en lýstar kröfur í búið nema 250 milljörðum alls. Hefur slitastjórn tekið afstöðu til 95 prósent þeirra krafna. Erlendir aðilar eiga kröfur í 70 prósent samþykktra krafna en slitaferlið allt getur tekið allt upp í fjögur ár.

Stærsti kostnaðarliður búsins er vaxtaskuldbinding gagnvart Arion banka sem Fjármálaeftirlitið hefur úrskurðað um. Samkvæmt honum eru vextirnir tæplega milljarður króna á mánuði sem að mati slitastjórnar er verulega umfram áhættu og kostnað bankans af yfirtöku innlána SPRON. Hefur slitastjórn farið fram á endurskoðun þessarar ákvörðunar við Fjármálaeftirlitið.

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar