Viðskiptaveldi Einars Sveinssonar virðist standa á brauðfótum. Eignarhaldsfélag hans tapaði tæplega sex milljörðum króna árið 2008 en í eignasafni hans að hluta voru mörg fyrirtæki sem stór þóttu og sterk fyrir efnahagshrunið í október það ár. Má þar nefna fyrirtæki á borð við Icelandair, móðurfélag olíufyrirtækisins N1 auk hluta í eignarhaldsfélaginu Vafningi sem stóð í stórræðum í Macau meðal annars.
DV fjallar um mál Einars í dag og gerir að því skóna að veldi hans sé að falli komið.
Kemur fram þar að fyrir utan umtalsvert tap árið 2008 hafi félög Einars orðið fyrir fleiri áföllum á síðasta ári til dæmis þegar Íslandsbanki leysti til sín hlut félaganna Máttar og Nausts í Icelandair en eignarhaldsfélag Einars átti stóra hluti í báðum þessum félögum. Áttu þau samtals 38 prósent hlutafjár í flugfélaginu.
Í kjölfarið veiktist staða Máttar til muna en það félag er stærsti hluthafi BNT sem á olíurisann N1 með húð og hári en Einar sjálfur hefur verið stjórnarformaður allra þessara félaga undanfarin ár. Hefur eignarhlutur félaga Einars í Mætti og minnst þremur öðrum félögum honum tengdum verið færður verulega niður sökum slæmrar stöðu
Staða Máttar er því langt í frá góð en þess skal getið að félagið er stærsti hluthafinn í BNT, sem á olíufélagið N1 að öllu leyti, með um 29 prósent eignarhlut. Einar er jafnframt stjórnarformaður BNT og N1.
Í ársreikningnum kemur fram að staða Máttar sé álitin svo slæm að eignarhlutur Hrómundar í því er færður niður í 0 krónur, nafnverðið á eignarhlut félagsins er hins vegar tæpir tveir milljarðar króna.
*Mynd: Karl Wernersson og Einar Sveinsson
