Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, óttast að of miklar vonir séu gerðar til rannsóknarskýrslu Alþingis vegna bankahrunsins og efast um að skýrslan standi undir þeim væntingum. Í Spjallinu með Sölva Tryggvasyni, á Skjá einum í gærkvöld, sagðist Sigurður hafa séð hluta úr skýrslunni og að það væri „ekki neitt sem að menn gætu tárast yfir.“
Aðspurður hversu stóran hluta skýrslunnar hann hefði séð sagði Sigurður að þær hefðu verið alveg nógu margar.
„Skýrslan einkennist af staðhæfingum á borð við; Ef þú hefðir gert þetta þá hefði þetta ekki gerst, og svo hvers vegna gerðirðu þá ekki þetta. Mér fannst þetta ekki merkilegt og ég held að það sé ekkert sem menn geta tárast yfir í skýrslunni,“ sagði Sigurður.
Sigurður gagnrýndi líka skiptastjóra Fons harðlega í viðtalinu og segir þá hafa greitt sér óhóflegar þóknanir. Nefnir hann þar meðal annars sölu hlutabréfa úr þrotabúinu og segir að þeir hafi tekið 20% af söluverðinu af hlutabréfum úr 365.
Í viðtalinu sagði Sigurður það útbreiddan misskilning að hann hefði unnið fyrir útrásarvíkinga, en það hafi m.a. komið fram í mótmælum á Austurvelli síðasta sumar.
„Þá fannst einhverju fólki sem var samakomið á Austurvelli tilvalið að kalla mig glæpamann og lögmann útrásarvíkinga og eitthvað svona fleira…að það ætti að drepa mig og fleira í þeim dúr. Ég kippti mér ekkert upp við þetta vegna þess að ég held að ég hafi ekki unnið fyrir einn einasta útrásarvíking á árunum 2004 til 2007, ég hins vegar vann fyrir marga sem áttu í samskiptum við þá,“ sagði Sigurður.
Sigurður var í stjórn Glitns þegar bankinn var þjóðnýttur haustið 2008. Í viðtalinu sagði Sigurður að Seðlabankinn hefði ekki rökstutt mál sitt með formlegum hætti.“Það kom semsé ekki stafkrókur. Það voru ekki einu sinni fjórar línur, heldur varð lögfræðingur bankans, Gestur Jónsson, hann varð að endursegja stjórninni þetta og skrifa þetta upp á blað eftir minni,“ sagði Sigurður G. Guðjónsson í Spjallinu með Sölva.
