Fimmtudagur - 18.3 2010 - 13:00 - Ummæli ()

Bifreiðafloti Íslendinga mun eldri en gengur og gerist í Evrópu. Mengun töluvert meiri

hosl11_bulgari.jpgBílafloti Íslendinga er töluvert eldri en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins og munar þar tæplega tveimur árum. Er meðalaldur einkabíla hérlendis 10,2 ára en 8, 5 ára í Evrópusambandinu. Skýtur skökku við að á svokölluðum góðæristíma í landinu jókst meðalaldur einkabíla landsmanna töluvert en meðalaldur flotans árið 1989 var 7,5 ár. Þetta þýðir almennt meiri kostnað fyrir bíleigendur vegna viðhalds og eldsneytiskostnaðar en ekki síður mun meiri mengun.

Er það Bílgreinasambandið sem tekið hefur saman þessar tölur og hafa menn þar á bæ nokkrar áhyggjur af þessari stöðu. Ekki aðeins er endurnýjun bifreiða almennt nauðsyn heldur ekki síður eyða eldri bílar mun meira en nýrri og af þeim sökum auk annars er mengun hér á landi vel yfir því sem eðlilegt geti talist. Er tekið sem dæmi að útblástursgildi koltvísýrings á nýjum bíl sé undir 100 grömmum á hvern ekinn kílómetra en meðaltalsgildi tíu ára gamalla bifreiða sé yfir 200 grömm á sama kílómetranum.

Bílaumboð landsins hafa tekið höndum saman við Bílgreinasambandið og efna til átaksins Bílavor 2010 næstu vikurnar. Hápunktar þess verða þrír laugardagar fram í maí og verður ákveðið þema tekið fyrir hvern þessara daga. Verður lögð áhersla á umhverfismál, þróunina í öryggisbúnaði bíla síðustu árin og þá verður áhersla lögð á þjónustuna í bílgreininni, hvernig tækninni hefur fleygt fram og fyrirtækin lagað sig að því með menntun og tækjabúnaði.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar