Fimmtudagur - 18.3 2010 - 14:03 - Ummæli ()

Fjarskiptafyrirtækið IceCell: Alheimsfjármálakreppan hefur tortímt orðstír Íslands.

cell.jpgEigendur fjarskiptafyrirtækisins IceCell sem hugðust setja hér upp farsímanet og hefja samkeppni við innlenda aðila á fjarskskiptamarkaðnum bera viðskiptaumhverfinu hér ekki góða sögu. Fullyrt er að alþjóðlega fjármálakreppan hafi tortímt orðstír Íslands og enginn erlendur aðili vilji lengur eiga nokkur viðskipti við Ísland eða íslenska aðila.

Póst- og fjarskiptastofnun hefur afturkallað tíðnileyfi það sem IceCell fékk til að setja upp hér og starfrækja GSM 1800 kerfi um allt land. Ástæðan er sú að fyrirtækið gat ekki staðið við skuldbindingar sínar vegna kreppunnar sem setti allt úr skorðum.

Í bréfi forsvarsmanna fyrirtækisins til Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir ári síðan þar sem biðlað var um frekari frest til fjármögnunar eru talin upp fjögur sérstök vandamál hvað íslenska markaðinn varðar. Segir þar orðrétt:

„Fjármálakreppan á Íslandi hefur spillt áformum okkar frá upphafi. Uppbygging IceCell krefst 14,25 milljóna evra samkvæmt útreikningum okkar. [...] Tækniskipulagið er eiginlega tilbúið en fjármögnunin hefur verið algerlega frosin í 2 ár einfaldlega vegna þess að alheimsfjármálakreppan hefur tortímt orðstír Íslands í heiminum. Nær enginn vill eiga viðskipti við Ísland og er það aðalvandamálið. Þeir sem sjá tækifæri á Íslandi hafa fest fé sitt annars staðar og gengið vel en það er vandamál númer tvö. Þriðja vandamálið er of lítill markaður og fjórða vandamálið er mikil samkeppni að mati flestra fjárfesta sem skilja ekki vel hvernig íslenski markaðurinn starfar.“

Ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar hér í heild sinni.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar